Heimilispakki Stærsti
Heimilispakki Stærsti
Gat ekki hlaðið upplýsingum um afhendingartíma
Heimilispakkinn – Stærsti
Tryggðu heimilinu hámarksöryggi með okkar umfangsmesta heimilispakka. Pakkinn hentar sérstaklega vel fyrir stærri íbúðir, raðhús og einbýlishús þar sem mikilvægt er að brunavarnir nái til allra helstu rýma.
Pakkinn inniheldur allt sem þarf til að greina eld á frumstigi og bregðast hratt við ef eldur kemur upp.
Pakkinn inniheldur:
- 1 × 6L léttvatnsslökkvitæki
- 5 × staka reykskynjara
- 1 × hitaskynjara
- 1 × eldvarnarteppi
Hitaskynjarinn hentar sérstaklega vel í eldhús, bílskúr, þvottahús og önnur rými þar sem gufa eða ryk getur valdið fölskum viðvörunum frá hefðbundnum reykskynjurum. Eldvarnarteppið er nauðsynlegur öryggisbúnaður í eldhúsinu og hentar vel til að slökkva eld í pottum, pönnum eða fatnaði.
Kostir
- Heildarlausn fyrir stærri heimili.
- Öflug brunavörn fyrir öll helstu rými.
- Snemmbær viðvörun með reykskynjurum og hitaskynjara.
- Öflugt 6L léttvatnsslökkvitæki fyrir fyrstu viðbrögð.
- Eldvarnarteppi sem ætti að vera til staðar á hverju heimili.
Heimilispakkinn – Stærsti er hagkvæm og örugg leið til að útbúa heimilið með þeim eldvarnabúnaði sem mælt er með til að vernda fjölskyldu og eignir.
Share
