Beint að vöruupplýsingum
1 af 3

Hitaskynjari 205-009 þ/s 10Y

Hitaskynjari 205-009 þ/s 10Y

Almennt verð 5,995 ISK
Almennt verð Söluverð 5,995 ISK
Sala Uppselt
Verð með skatti.
Magn

Þráðlaus hitaskynjari 3V – samtengjanlegur

Áreiðanlegur hitaskynjari sem hentar sérstaklega vel þar sem mikið er um ryk og ló, svo sem í útihúsum og þvottahúsum. Skynjarinn greinir bæði hátt hitastig og hraða hitahækkun og gefur frá sér öfluga 85 dB hljóðviðvörun þegar hætta skapast.

Skynjarinn er rafhlöðuknúinn og auðveldur í uppsetningu. Hægt er að samtengja ótakmarkaðan fjölda skynjara þráðlaust í lokaðan hóp, með allt að 500 m fjarlægð milli skynjara. Þegar einn skynjari fer í viðvörun berst merkið til annarra skynjara í hópnum og eykur þannig öryggi.

Helstu eiginleikar

  • Hitagreining við 57°C og við hraða hitahækkun.
  • Öflug 85 dB hljóðviðvörun.
  • Þráðlaus samtenging við marga skynjara.
  • Allt að 500 m fjarlægð milli skynjara.
  • Prófunar- og þöggunarhnappur með gaumljósi.
  • Tímabundin þöggun í 9 mínútur.
  • Ljós- og hljóðviðvörun þegar rafhlaða er að tæmast.
  • Langur endingartími rafhlöðu, allt að 10 ár við venjulegar aðstæður.
  • Hægt að fá samtengjanlega fjarstýringu sem titrar við viðvörun og nýtist einnig við prófun (vörunúmer 305093).

Tæknilegar upplýsingar

  • Rafhlaða: 3V, óskiptanleg.
  • Ending rafhlöðu: Allt að 10 ár við VENJULEGAR AÐSTÆÐUR!
  • Hitaviðmið: 57°C.
  • Hljóðstyrkur: 85 dB í 3 m fjarlægð.
  • Umhverfishitastig: 0°C til 55°C.
  • Rakastig: 10–95%.
  • Stærð: 100 × 45 mm.
  • Viðvörun um lága rafhlöðu: Hljóðmerki á 40 sekúndna fresti í allt að 30 daga.

Upplýsingar

Skoða nánar
Vörunúmer: 305070