Beint að vöruupplýsingum
1 af 1

Sláttu Róbot - Robot Lown Movers E1600T

Sláttu Róbot - Robot Lown Movers E1600T

Almennt verð 80.000 ISK
Almennt verð Söluverð 80.000 ISK
Sala Uppselt
Verð með skatti.
Magn

Hver er ávinningurinn af því að eiga vélina?

  • Tímasparnaður: Sjálfvirkur garðsláttur með slátturóbot skapar meiri tíma til að njóta garðsins.
  • Sparar orku: Burstalaus mótor hefur minni orkuþörf.
  • Umhverfisvæn: Vinnur hljóðlega á áhrifaríkan hátt og hefur minna kolefnisspor.
  • Notendavæn: Einföld uppsetning og er stjórnað með forriti gegnum Wi-Fi.
  • Örugg og trygg: Háþróaðir skynjarar og þjófavörn tryggja öryggi vélarinnar og garðsins.

Helstu eiginleikar E1600T Slátturóbots:

  • Stórt vinnusvæði: Nær að dekka 3.600 m² svæði.
  • Öflug rafhlaða: 13,2Ah litíum-rafhlaðan dugar í 4 klst. og nær yfir 1.300 m² á einni hleðslu.
  • Háþróaður burstalaus mótor: Kraftmikill sláttur, lágmarks hávaði og lengri endingartími.
  • Snjallskynjarar: Hæðar-, halla- og árekstrarskynjarar tryggja örugga notkun, auk þess skila regnskynjarar vélinni sjálfkrafa á hleðslustöð ef flötin blotnar.
  • Wi-Fiþægindi: Þú stjórnar og fylgist með sláttuvélmenninu gegnum einfalt farsímaapp.
  • Sérsniðin sláttuáætlun: Þú setur upp vikulegt plan fyrir sjálfvirkan garðslátt.
  • Þjófavörn: E1600T Slátturóbotinn er varin með lykilorði.
  • Sjálfvirkt hleðslukerfi: Fer sjálfkrafa til hleðslustöðvar þegar rafhlaðan er að tæmast.

E1600T er öflugur slátturóbot sem sker sig úr fyrir notendavæna hönnun og frábær afköst. Hentar jafnt á lítil sem stór svæði, er áreiðanlegur í notkun og búinn mörgum öryggiseiginleikum. Snjall búnaður gerir þér kleift að tímasetja sláttinn, fylgjast með framvindu verksins og stjórna vélinni úr fjarlægð. Vatnsheld hönnun og fjölmargir skynjarar auka áreiðanleika E1600T og tryggja hnökralausa frammistöðu við mismunandi aðstæður.

Skoða nánar

Leiðbeiningar

  1. Sækðu appið
  • iPhone (iOS): Leitaðu að "EGROBOT" í App Store.
  • Android: Leitaðu að "EGROBOT" í Google Play.
  1. Kveiktu á róbotanum
  2. Kveiktu á aðalrofanum undir vélinni.
  3. Ýttu á rauða Emergency takkann til að ræsa hana.
  4. Ef lykilorð er virkt, sláðu það inn (sjálfgefið er 1234 ef þvi hefur ekki verið breytt).
  5. Tengdu símann við Wi‑Fi róbotans
  6. Opnaðu Wi‑Fi/WLAN stillingar í símanum.
  7. Leitaðu að neti sem byrjar á: MiotlinkAp_xxxx
  8. Tengstu því neti.
  9. Ef síminn spyr hvort halda eigi tengingunni þótt internet sé ekki tiltækt, veldu Já / Keep Connection.
  10. Opnaðu EGROBOT appið
  • Farðu aftur úr Wi‑Fi stillingunum þegar Wi‑Fi táknið birtist.
  • Opnaðu EGROBOT appið.
  • Þá ættir þú að geta stjórnað róbotanum úr appinu.

Ef appið finnur ekki róbotann
Handbókin nefnir að róboti og hleðslustöð séu með sameiginlegt Address (vistfang). Ef skjárinn sýnir villu um tengingu þarf að para þau aftur:

  1. Farðu í Address valmynd á skjá róbotans.
  2. Ýttu á takkann á hleðslustöðinni.
  3. Róbótinn tekur við réttu vistfangi.
  4. Veldu YES til að staðfesta.
Vörunúmer: 282273