Beint að vöruupplýsingum
1 af 6

Vatnsskynjari WiFi Heiman

Vatnsskynjari WiFi Heiman

Almennt verð 3,250 ISK
Almennt verð Söluverð 3,250 ISK
Sala Uppselt
Verð með skatti.
Magn

WiFi Vatnsleka skynjari WS2WL

Verndaðu heimilið eða vinnustaðinn gegn kostnaðarsömu vatnstjóni.

Lítill skynjari sem getur sparað þér stórar fjárhæðir. Heiman HS2WL vatnslekaskynjarinn greinir vatn um leið og leki kemur upp og lætur þig vita með öflugri hljóð- og ljósviðvörun. Þannig geturðu brugðist hratt við og dregið úr hættu á skemmdum á gólfefnum, innréttingum og búnaði.

Með IP67-vörn gegn ryki og vatni hentar skynjarinn vel á viðkvæma staði þar sem vatnsleki getur haft alvarlegar afleiðingar, svo sem undir eldhúsvöskum, við þvottavélar, uppþvottavélar og heitavatnstanka.

Eiginleikar

  1. Einföld Wi-Fi uppsetning og þægileg notkun.
  2. Mjög lítil orkunotkun.
  3. Innbyggð hljóð- og ljósviðvörun.
  4. Viðvörun þegar rafhlaða er að tæmast.
  5. Auðveld uppsetning án verkfæra.
  6. Stílhrein og nútímaleg hönnun.
  7. Wi-Fi tenging: Styður 2,4 GHz Wi-Fi net. 

Hvar er best að staðsetja skynjarann?

  • Undir eldhúsvaski
  • Við uppþvottavél eða þvottavél
  • Við heitavatnstank
  • Nálægt vatnslögnum
  • Í kjöllurum og tæknirýmum
Skoða nánar
Vörunúmer: 305237